UNNUR 2.0
Safnar köttum

Safnarasýningin: Að skapa skart út skít

2005-06-03 01:18  _Fræðaviðburður_

Síðasta sunnudag hæklaðist ég með hjálp strætó upp í Gerðuberg að hlýða á fyrirlestur Ólafs J. Engilbertssonar sem bara titilinn Að skapa skart úr skít. Fyrirlesturinn var nokkuð skemmtilegur en Ólafur fjallaði um sérvitringa, bæði útlenda og innlenda sem söfnuðu því sem annað fólk hafði úrskurðað drasl og sköpuðu úr því listaverk. Ekki var mikið um greiningar, Ólafur var meira að lýsa en að greina og sýndi skemmtilegar myndir hvaðan æva af úr heiminum. Einna athyglisverður fannst mér sagan af indverska manninum sem yfirgaf fjölskyldu sína og settist að í kofa úti í skógi. Hann hélt í starf sitt en á kvöldin og á nóttunni skapaði hann á fullu. Svo einhverjum árum síðar voru yfirvöld að reyna að berjast við móskítóflugur og ryðja skóg þarna nálægt og volá! í ljós koma heilar hersveitir manna og dýra skapaðra úr steinsteypu, rafmagnsvírum, flísabrotum og allskyns drasli. Yfirvöld voru hrifin af þessu og styrktu manninn í því að klára verkið og síðustu ár hefur þetta verið mest sótti ferðamannastaður Indlands á eftir Taj Mahjal. Samt er í dag verið að spá í að rífa garðinn, þetta er svo eftirsótt byggingarland sko. Skoðið myndirnar svo þið getið sagt þið hafið séð þetta áður en þetta víkur fyrir háhýsi. ;)

Annar athyglisverður sérvitringur sem fjallað var um var franski póstburðarmaðurinn Ferdinand Cheval. Hann hnaut einn góðan eftirmiðdag í lok 19. aldarinnar um steinvölu og beygði sig niður til að skoða hvað það var sem hafði orsakað fallið. Viti menn, steinvalan reyndist vera steingervingur og hann fékk einhverja uppljómun og byggði á næstu 20 árum eða svo höll algerlega einn frá grunni, úr einmitt steinum sem hann safnaði meðan hann gekk með póstinn hús úr húsi. Hér má sjá myndir af höllinni og umfjöllun um hana. Súrrealistarnir voru afskaplega hrifnir af höllinni hans og vildu meina að hún væri eitt mesta listaafrek mannkynssögunnar. Ýmsum frönskum broddborgurum fannst hún þó harla lágkúruleg og fannst skandall þegar franska ríkið ákvað að veita styrk til viðhalds og varðveislu hallarinnar. Mér finnst hún mjög kúl. André Breton fannst hún líka kúl og þá er hún alveg pottþétt kúl.

Eftir fyrirlesturinn skoðaði ég sýninguna. Hún var skemmtileg en þó fann ég fyrir því að valið í fyrra höfðaði persónulega meira til mín heldur en valið í ár. Eins og í fyrra saknaði ég þess líka að sjá ekki betur fjallað um söfnin (sem ekki er verið að sýna nema brot úr) og einnig hefði ég viljað fá að vita meira um fólkið á bak við söfnin. Ég hefði viljað sjá mynd af konunni sem safnar dúkkulísum umkringdri af þúsund dúkkulísum, sjá elvissafnarann í búningnum að hlusta á Elvis hefði viljað lesa texta þar sem safnararnir segðu hetjusögur af því hvernig þau kræktu í sérlega gómsæta bita og hvernig aðrir ennþá gómsætari (auðvitað) gengu þeim úr gripum, lesa þau útskýra hvað þeim finnst skemmtilegt við söfnin sín og það að safna, fá að vita hvaða ókostir fylgja því að vera safnari. Svona sögur hefði jafnvel mátt setja fram á myndbandi, þá fyrst hefði þessi sýning orðið virkilega djúsí.

Upplýsingar um opnunartíma safnarasýningarinnar, dagskrá fyrirlestraraðarinnar og um málþing og safnarabýttimarkað er að finna hér. Þið ættuð öll að drífa ykkur, það er fríkeypis inn og Godzilla skrýmslin og ölflöskulímmiðasafnið eru mjög kúl! :)


Eldri færslur í þessum flokki

  • . . .

  • User:
    Pass:

    (C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!